MÖGNUM Ráðningar

mögnum ráðningar.png

MÖGNUM RÁÐNINGAR

Ég er spennt og stolt að tilkynna að nú mun Mögnum bjóða upp á ráðningarþjónustu.

Mögnum hefur verið starfandi á Akureyri síðan 2017 og komið að verkefnum á sviði fræðslu, ráðgjafar, mannauðsmála, markþjálfunar og stjórnendaþjálfunar.

Ráðningarnar falla afar vel að þeirri þjónustu sem fyrir er og einnig bý ég að yfir 10 ára reynslu af því að starfa við ráðgjöf og þjónustu í ráðningum.

Ég hlakka mikið til að vinna með fleira fólki og fyrirtækum á komandi misserum og vona að því verði tekið fagnandi að hafa slíka þekkingu og þjónustu á svæðinu.