MÖGNUM
Hver erum við?
Fagleg og fersk þjónusta á sviði ráðninga og ráðgjafar
MÖGNUM
RÁÐNINGAR OG RÁÐGJÖF
Mögnum var stofnað á Akureyri árið 2017 og frá árinu 2024 einnig með skrifstofu á Selfossi og er eina fyrirtækið starfrækt utan höfuðborgarsvæðisins sem býður sambærilega þjónustu.
Við þekkjum íslenskan vinnumarkað og vinnum með viðskiptavinum á öllu landinu.
Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag
Hjá Mögnum nálgumst við lausn verkefna og samstarf út frá þremur kjarnagildum:
metnaði, möguleikum og mennsku.
Metnaður birtist í vönduðum vinnubrögðum, faglegri nálgun og ábyrgð í hverju verkefni. Við leggjum okkur fram um að skilja aðstæður og þarfir hvers vinnustaðar og byggja upp ferli sem eru bæði skýr og markviss.
Við vinnum okkar verkefni af heilindum og fagmennsku og markmiðið er alltaf að gera gagn og vinna að lausnum sem standast væntingar þeirra sem til okkar leita.
Við trúum því að alls staðar séu möguleikar. Hlutverk okkar er að vera samferða viðskiptavinum við að greina stöðuna, sjá nýjar leiðir, finna og nýta möguleikana til fulls.
Við nálgumst verkefni með lausnamiðuðu hugarfari og trú á að svo gott sem alltaf sé hægt að finna leiðir áfram. Stundum þarf að staldra við og skoða stöðuna frá nýju sjónarhorni og til að koma auga á nýja möguleika og tækifæri.
Þessi nálgun á ekki síst við um einstaklinga sem eru að leita að næstu skrefum í starfi. Við vitum að atvinnuleit getur verið bæði krefjandi og óviss, en trúum því að alltaf séu til möguleikar – en getum jú þurft að hafa fyrir fyrir því að sjá þá og finna.
Mennskan er grunnurinn að öllu sem við gerum. Við leggjum ríka áherslu á traust, virðingu, upplýsingagjöf og góð samskipti í samstarfi okkar við viðskiptavini.
Í bland við faglegheitin þá höfum við alltaf líka léttleika og gaman í samstarfinu.
Við nálgumst hvert verkefni af einlægum áhuga á fólkinu og aðstæðunum sem við vinnum með. Hlýja, heiðarleiki og léttleiki skipta okkur miklu máli – sem og það að við fólkið erum jú alls konar og marglaga og hafsjór af alls konar visku og reynslu. Möguleikarnir birtast og sjást svo miklu betur þegar við og fólkið sem við vinnum með finnum fyrir hlustun, virðingu og mennsku.
Magnað teymi
Sigríður Ólafsdóttir
Sigga er ráðgjafi í mannauðsmálum og vottaður PCC markþjálfi með áralanga reynslu af ráðgjöf og samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga.
Hún er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Auk þess hefur hún sótt fjölmörg sérhæfð námskeið á sviði stjórnunar og samskipta.
Sigga hefur um árabil unnið að því að efla fólk í starfi og lífi. Hún er þekkt fyrir hlýlegt viðmót, líflegan húmor og sterka leiðtogahæfni. Með djúpa innsýn í mannleg samskipti brennur hún fyrir því að miðla þekkingu og stuðla að jákvæðum og árangursríkum starfsanda.
Telma Eiðsdóttir
Telma er ráðgjafi í ráðningum og mannauðsmálum. Hún er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Telma vinnur af fagmennsku og innsæi með viðskiptavinum að því að finna rétta fólkið og efla mannauð vinnustaða. Hún er þekkt fyrir sterka samvinnufærni, óþrjótandi þekkingarþrá og næmni í að lesa í fólk og aðstæður.
Umsagnir frá viðskiptavinum okkar
„Þjónusta Mögnum var frábær og við upplifum hana sem afar faglega, skilvirka, trausta og persónulega. Það eru skýrir ferlar, góð samskipti, vönduð ráðgjöf og raunverulegur áhugi á að skilja bæði þarfir okkar og óskir. Mögnum heldur vel utan um ferlið frá upphafi til enda og sparar okkur bæði tíma og vinnu auk þess að koma með mikla þekkingu og reynslu að borðinu sem tryggir faglegt og ígrundað ferli sem skilar raunverulegum árangri. Við höfum nýtt ráðningarþjónustuna, ráðgjöf og vinnustofur hjá Mögnum og mælum 100% með þjónustunni.“
—
Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri, Grímsnes- og Grafningshrepps„Ég hef leitað til Siggu í vinnutengd markþjálfunarsamtöl. Bakgrunnur hennar í atvinnulífinu og menntun gerir það að verkum að ég á auðvelt með að fá speglun á það sem ég er að velta fyrir mér í mínu starfi. Hún veit nákvæmlega hvers á að spyrja til að draga fram það sem skiptir máli. Samtöl með Siggu hafa verið einstaklega jákvæð og hvetjandi. Sigga er fagmanneskja fram í fingurgóma.“
—
Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri„Sigga hélt námskeið fyrir fræðslusvið Akureyrarbæjar sl. haust og voru þátttakendur afar ánægðir með gott, skemmtilegt og nærandi námskeið. Mörgum vikum eftir námskeiðið var enn að heyrast frá þátttakendum hvað námskeiðið hefði verið frábært og hitt vel í mark. Sigga hefur einstaklega þægilega og skemmtilega nærveru enda nær hún vel til fólks, sýnir skilning og áhuga, hlustar vel, spyr, útskýrir og hvetur. Efnið þekkti hún vel og nálgun efnisins aðlagaði hún alveg að hópnum. Samvinnan við Siggu í upphafi verkefnis var til fyrirmyndar. Sigga fékk upplýsingar um verkefnið, þátttakendur og markmiðin með fræðslunni. Allt sem rætt og samið var um skilaði sér til þátttakenda og námskeiðshaldara. Það er eiginlega erfitt að finna nógu sterk og lýsandi orð yfir hana Siggu!“
—
Sigurbjörg R. Jónsdóttir, fræðslusvið Akureyrarbæjar„Ég hef nýtt mér ráðningaþjónustu Mögnum og mæli eindregið með henni. Þjónustan er persónuleg og fagleg, ekki síst gagnvart umsækjendum og hvert verkefni fær raunverulega athygli. Frá upphafi fann ég að verkefnið mitt skipti máli og að ekki væri unnið á „færibandsmáta“, heldur með einlægum áhuga á að finna réttu lausnina. Samskiptin einkenndust af jákvæðni og lausnamiðaðri nálgun, sem gerði samstarfið bæði skilvirkt og áreynslulaust. “
—
Valgeir B Magnússon, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar „Þjónusta Mögnum einkennist af mikilli fagmennsku og þekkingu á öllu ráðningarferlinu, sem veitti mér mikið öryggi. Samstarfið var frábært og þau nákvæmlega hvað þau eru að gera og sérstaklega gott að geta rætt og fengið ráð um hvers konar starfsmann vantar inn í teymið. Mögnum sýndi ríkan skilning á okkar þörfum og fagleg vinnubrögð tryggðu að við fundum rétta einstaklinginn í teymið okkar.“
—
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, Framkvæmdastjóri, Markaðsstofa Suðurlands„Ég hef nýtt mér þjónustu Mögnum á bæði fyrri vinnustað sem og núverandi og ástæðan er sú að þar get ég alltaf treyst á að fá þá þjónustu sem ég leita eftir, þar sem hlýja og sveigjanleiki eru einkunnarorðin. Fyrir litlar einingar er ómetanlegt að geta nýtt sér þjónustu fagaðila við ráðningar enda skiptir hver nýr starfsmaður miklu máli og öllu skiptir að vel sé valið.“
—
Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga„Reynsla mín af ráðningarþjónustu Mögnum er sú að hún er mjög fagleg og persónuleg. Samskiptin voru góð, svör bárust fljótt og leiðsögnin var skýr og hjálpleg. Þjónustan einfaldaði ráðningarferlið verulega og ég er í heildina mjög ánægð með samstarfið og mæli hiklaust með Mögnum.”
—
Hildur Brynjarsdóttir, framkvæmdastjóri heimavistar MA og VMA
„Við í þjónustuveri Póstsins nýttum okkur þjónustu Mögnum til að gera okkur sem hóp og einstaklinga að sterkari mannneskjum. Námskeiðið var frábært og vinnan með styrkleikana skilaði sér strax í hópinn. Takk Sigga þú gerðir sterka hópinn okkar enn öflugri. Við leytum klárlega aftur til Mögnum“
—
Lilja Gísladóttir, þjónustustjóri Póstsins „Sigga hefur komið að ýmsum verkefnum í fyrirtækjum og stofnunum í samstarfi við okkur í SÍMEY. Siggu tekst vel að aðlaga sig að þörfum ólíkra hópa, hún undirbýr sig vel og nær að setja sig inn í aðstæður á hverjum stað. Þannig nær hún undantekningarlaust vel til hópa og verkefnin hafa skilað miklum árangri. Sigga er lifandi fyrirlesari, hún beitir jafnframt fjölbreyttum aðferðum til að virkja starfsmannahópa til góðra verka.“
—
Símenntunarmiðstöð EyjafjarðarMögnum kom sem ráðgjafi og framkvæmdaaðili í tengslum við ráðningar allra sem núna sitja í framkvæmdastjórn SAK - utan forstjóra. Var öll aðkoma þeirra mjög fagmannleg og góð, hvort sem um var að ræða undirbúning, viðtölin sjálf eða frágang við ráðningar. Getum sannarlega mælt með þeirra þjónustu
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahúsins á Akureyri
„Markþjálfunin hjá Siggu hjálpaði mér að búta niður stóru skrefin við að gera mastersverekefnið mitt sem og að takast á við ákveðnar áskoranir á vinnustað. Þannig komu minni og viðráðanlegri skref að markmiðinu. Það sem einkenndi Siggu og hennar nálgun er fyrst og fremst hvað hún er geislandi og yndisleg. Það birtir yfir þar sem hún er. Alltaf tekið á móti mér með gleði og maður fylltist einhvern veginn bjartsýni. Það er erfitt að lýsa því, þið þurfið bara að sjá hana :) Maður er svo velkomin og hún sýnir manni skilyrðislaust áhuga. Það er magnað hvernig hún áttar sig og spyr spurninga úr öllum áttum og öllum vinklum, sem oft eru þrælerfiðar og fá mann til að hugsa um hluti sem maður hafði ekki pælt í en skipta máli. Ég fór einnig á fyrirlestur með henni á vinnustaðnum mínum. Ég gleymi því aldrei þegar hún mætti. Labbaði inn svo bein í baki og flott og tók inn með sér birtu og gleði! Ég er ánægð með þessa þjónustu því mér leið alltaf vel inni hjá Siggu. Ég gat talað um hvað sem er og alltaf hafði hún áhuga á mér og var aldrei hneyksluð eða neitt þannig. Skrifaði og teiknaði svo frábær blöð handa mér um það sem við töluðum um í viðtölunum, sem ég setti alltaf á ísskápinn hjá mér. Svo gott að sjá myndrænt hvað myndi hjálpa mér og hvað ég ætti að forðast. Mér fannst ég ná hellings framförum af því að vera hjá Siggu og fær hún því mín bestu meðmæli. “
—
Eva Hilmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur„Reynsla okkar af þjónustu Mögnum hefur verið góð, þjónustan er hlýleg, persónuleg og skemmtileg án þess að fagmennskan tapist. Við höfum nýtt okkur ráðningarþjónustuna, úttekt á vinnuumhverfi og stjórnun vinnustofa og í öllum tilvikum fengið mikil gæði á sanngjörnu verði. Það er þessi blanda af mannlegri nálgun og faglegri framkvæmd sem gerir það að verkum að við getum mælt með Mögnum.“
—
Vaka Óttarsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri Háskólans á Akureyri„Við hjá Eimi höfum leitað til Mögnum vegna ráðninga oftar en einu sinni og höfum verið mjög ánægð með þá þjónustu. Hjá Mögnum höfum við mætt fagmennsku, greiðvikni og röskum vinnubrögðum.“
—
Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims„Í starfi mínu sem sveitarstjóri hef ég nýtt mér þjónustu Mögnum og það hefur reynst prýðilega. Bæði aðstoð við ráðningar starfsfólks, úttektir og vinnustofur vegna sérverkefna sem snúa að mannauðsmálum. Ég get heilshugar mælt með Mögnum. Þjónustan er fagleg, persónuleg og hefur alltaf staðið mjög vel undir mínum væntingum. Svo er bara gaman að vera í samskiptum við gott fólk sem veit hvað það er að gera!“
—
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi „Ég leitaði til Siggu markþjálfa hjá Mögnum þegar mér fannst ég þurfa að fá leiðsögn til að ná meira jafnvægi á milli einkalífs og vinnu. Ég fann fljótt jafnvægið sem ég var að leita að með markvissri samvinnu við Siggu sem á sinn persónulega, faglega og hógværa hátt beitti verkfærum markþjálfunarinnar í samtölum okkar. Ennfremur hjálpaði hún mér að setja mér markmið með krefjandi spurningum sem leiddu mig áfram til lausna og árangurs. Þessi stuðningur sem Sigga veitti mér með fagmennsku og góðri þekkingu á markþjálfun opnaði leiðir til nýrra markmiðsetninga og fleiri spennandi áskorana. Ég hlakkaði ávallt til að takast á við þær eftir tímana hjá Siggu“
—
Bryndís Björnsdóttir, skólastjóri„Mögnum sá um starfsdaga fyrir okkur og einkenndist samstarfið af jákvæðni, fagmennsku og lausnamiðaðri nálgun. Þjónustan er sveigjanleg, áreiðanleg og með framúrskarandi samskiptum sem lyfta öllum þáttum samstarfsins. Þjónusta Mögnum reyndist okkur afar vel og skilaði gæðum og góðum árangri. Hlökkum til næsta tækifæris á frekari samvinnu.“
—
Svavar Pálsson, sýslumaður„Ég hef bæði á núverandi og fyrrum vinnustöðum mínum nýtt þjónustu Mögnum. Aðallega hefur um verið að ræða þjónustu við ráðningarferli frá A til Ö, en einnig höfum við fengið fyrirtækið til liðs við okkur þegar ferli var þegar hafið og óvæntar áskoranir komu upp. Stjórnendur hjá okkur hafa jafnframt farið í markþjálfun til Siggu og við fengið hana til að halda vinnustofur. Í öllum tilvikum hefur þjónustan einkennst af fagmennsku, trausti og metnaði. Í ráðningaferlum er sérstaklega áberandi hversu hröð, lausnamiðuð og vönduð þjónustan er, og verðið sanngjarnt. Ég get heilshugar mælt með þessu öfluga norðlenska fyrirtæki.“
—
Hildur Ösp Gyldadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, HSN