RÁÐNINGAR

Ráðningaþjónusta Mögnum

Magnaðu möguleikana með okkur

Thelma situr við skrifborðið sitt og vinnur í tölvu

Við finnum
rétta fólkið með þér

Mögnum veitir alhliða ráðningaþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög um allt land.

Við erum samferða viðskiptavininum í gegnum allt ráðningarferlið, frá mótun starfslýsingar til loka ráðningar.

Við vinnum af metnaði og fagmennsku, veitum ráðgjöf og utanaðkomandi sjónarhorn á sama tíma og við stuðlum að jákvæðri og faglegri upplifun fyrir alla umsækjendur.

Hjá Mögnum sameinum við fagmennsku, innsæi og dýrmæta reynslu til að tryggja árangursríkar ráðningar og öfluga mannauðsráðgjöf.

Við þekkjum markaðinn vel og vinnum af metnaði með fjölbreyttum hópi viðskiptavina.

Ráðningaþjónusta með rætur á landsbyggðinni

Mögnum er eina fyrirtækið utan höfuðborgarsvæðisins sem býður sambærilega þjónustu.

Við þekkjum íslenskan vinnumarkað og vinnum með viðskiptavinum víðs vegar af landinu.

Mögnum það sem á svæðinu býr
svo við eflumst sem samfélag

Við bjóðum faglega, skjóta og persónulega þjónustu, þar sem góð upplifun umsækjenda og viðskiptavina er í forgrunni.

  • Öflugan gagnagrunn og víðtæk tengsl við atvinnulífið sem auðvelda okkur að finna rétta fólkið.

  • Eigin miðla sem tryggja breiða og markvissa dreifingu auglýsinga.

  • Utanumhald og umsjón með ráðningarferlinu, sem sparar viðskiptavinum tíma og vinnu.

  • Markvissa og jákvæða upplýsingagjöf til umsækjenda á öllum stigum.

  • Sérhæfða ráðgjöf í gegnum allt ferlið, frá skilgreiningu starfs til ráðningar.

Ráðningarferlið

  • Við vinnum með ykkur að skýrri og markvissri starfslýsingu þar sem hlutverk, ábyrgð og hæfniskröfur eru vel skilgreind. Traustur grunnur eykur líkur á réttri ráðningu.

  • Við mótum faglega og aðlaðandi auglýsingu og tryggjum markvissa dreifingu á viðeigandi miðlum til að ná til réttra umsækjenda.

  • Við nýtum öflugan gagnagrunn og víðtækt tengslanet til að finna hæfa einstaklinga – einnig þá sem eru ekki virkir í atvinnuleit.

  • Við sjáum um örugga móttöku og utanumhald umsókna og tryggjum faglega og skipulega meðferð allra gagna.

  • Við skipuleggjum og framkvæmum viðtöl, öflum umsagna og metum hæfni, reynslu og persónulega eiginleika með faglegum hætti.

  • Við önnumst öll samskipti við umsækjendur á hverju stigi ferlisins og leggjum áherslu á jákvæða, skýra og faglega upplifun.

Magnaðu möguleikana með okkur

Við finnum rétta fólkið með þér!