MARKÞJÁLFUN

Eflum fólk –
styrkjum vinnustaði

Fagleg markþjálfun fyrir stjórnendur, teymi og starfsfólk

Markþjálfun

Fjölmargir vinnustaðir leita til Mögnum til að styðja við stjórnendur, teymi og starfsfólk. Við trúum því að fólk sé mikilvægasta auðlind hvers vinnustaðar og með réttum stuðningi blómstrar bæði einstaklingurinn og vinnustaðurinn.

Markþjálfun er markvisst samtalsferli sem byggir á traustu trúnaðarsambandi og skýrri aðferðafræði. Hún styður við markmiðasetningu, leiðtogafærni, samskipti og breytingastjórnun – þætti sem skipta sköpum í síbreytilegu starfsumhverfi nútímans.

Rannsóknir sýna að markþjálfun eykur frammistöðu, starfsánægju og tryggð við vinnustaðinn.

Markþjálfun sem mætir þörfum fólks þar sem það er; stjórnendur, teymi og einstaklingar

Þjónustuflokkar

  • Fyrir stjórnendur sem vilja styrkja leiðtogastíl sinn og takast á við áskoranir af skýrleika og festu.

    Markþjálfunin nýtist meðal annars til að:

    • Þróa leiðtogahæfni og sjálfsvitund

    • Setja skýr og raunhæf markmið

    • Takast á við krefjandi samskipti

    • Leiða breytingar á árangursríkan hátt

    • Draga úr álagi og skapa betra jafnvægi

    Við veitum faglegan stuðning, uppbyggilegt aðhald og raunhæfar aðferðir sem styðja við árangur í starfi.

  • Fyrir teymi sem vilja efla samvinnu, traust og árangur.

    Unnið er meðal annars með:

    • Skýra ábyrgð og hlutverk

    • Opin og heiðarleg samskipti

    • Nýtingu styrkleika hvers og eins

    • Jákvæða og heilbrigða teymismenningu

    Markþjálfun fyrir teymi skapar sameiginlega sýn og styrkir liðsheildina.

  • Fyrir fólk sem vill vaxa í starfi og lífi.

    Markþjálfunin styður við:

    • Sjálfsskilning og persónulega þróun

    • Markmiðasetningu og framkvæmd

    • Tíma- og verkefnastjórnun

    • Streitustjórnun og jafnvægi

    Hún gefur rými til að skýra stefnu, styrkja ábyrgð og auka árangur.

  • Mentormarkþjálfun er ætluð þeim sem hyggjast votta sig í markþjálfun eða endurnýja vottun samkvæmt viðmiðum ICF.

    Ferlið byggir á:

    • Markvissri faglegri endurgjöf

    • Upptökum og raunverulegum samtölum

    • Hóptímum og einkatímum

    • Vinnslu samkvæmt hæfnisviðmiðum ICF

    Leiðbeinandi er Sigríður Ólafsdóttir, reyndur mentormarkþjálfi með yfir 1.800 klukkustunda reynslu í markþjálfun og víðtæka reynslu af ACC og PCC vottun.

    Þátttakendur fá faglega og dýrmæta leiðsögn í gegnum allt ferlið.

Umsagnir úr Mentormarkþjálfun

„Ég hélt að mentormarkþjálfun væri formsatriði – en fékk í staðinn dýrmæta speglun og djúpan lærdóm sem bætti mig á skömmum tíma. Fagmennska og nærvera Siggu skiptu sköpum.“

__
Alma J. Árnadóttir, PCC markþjálfi

„Sigga skapaði öruggt og faglegt rými þar sem ég fékk frelsi til að finna mína leið – án þess að missa fókus á hæfnisþættina. Stuðningur hennar í gegnum ACC ferlið var ómetanlegur.“

__
Kristrún Konráðsdóttir, ACC markþjálfi

„Mentormarkþjálfun hjá Siggu var vítamínsprauta. Hún sér vaxtartækifæri skýrt, skorar á mann af fagmennsku og hjálpar manni að stíga út fyrir þægindarammann.“

__
Lilja Gunnarsdóttir, PCC markþjálfi

Ræðum næstu skref

Viltu efla fólk og styrkja vinnustaðinn?