VINNUSTOFUR - RÁÐGJÖF - FRÆÐSLA
Vinnustofur, ráðgjöf og fræðsla sem styrkir fólk og vinnustaði
Sérsniðin nálgun sem skilar árangri
Mögnum vinnustaðinn
Stöðumat og greining
Sáttamiðlun og úrlausn ágreinings
Innleiðing breytinga
Ferlar og skipulag
Stefnumótun
Verkefnastjórn
Stöðumat og greining Sáttamiðlun og úrlausn ágreinings Innleiðing breytinga Ferlar og skipulag Stefnumótun Verkefnastjórn
Ráðgjöf
Árangur og menning vinnustaðar byggist á fólkinu sem þar starfar.
Markviss og fagleg ráðgjöf getur skipt sköpum þegar kemur að vellíðan, virkni og vexti.
Hjá Mögnum bjóðum við upp á sérsniðna ráðgjöf sem styður stjórnendur og starfsfólk í verkefnum sínum og vinnum að lausnum sem skila árangri.
Ráðgjöf okkar er veitt í fjölbreyttri mynd allt eftir þörfum hverju sinni; samtöl, rýnifundir, vinnustofur, úttekt eða greining - hvað eina sem styður við þróun og umbætur í starfsemi.
Vinnustofur og fræðsla
Mögnum býður upp á fjölbreyttar og sérsniðnar vinnustofur og fræðslu fyrir vinnustaði sem vilja efla starfsfólk, styrkja teymi og auka árangur.
Við vinnum með hagnýtar og áhrifaríkar aðferðir þar sem þátttaka, samtal og raunveruleg verkefni eru í forgrunni.
Markmiðið er að skapa lærdóm sem skilar sér beint inn í daglegt starf.
Allar vinnustofur eru aðlagaðar að þörfum hvers verkefnis.
Við byrjum á samtali og þarfagreiningu til að tryggja að vinnan skili raunverulegum árangri.
Möguleg efnistök og áherslur
-
Markmið: Að efla samskipti og skapa öruggan vettvang fyrir uppbyggilegar umræður.
Meðal efnis:
Hvetjandi samskipti og uppbyggileg endurgjöf
Að takast á við ágreining á jákvæðan hátt
Að setja og virða mörk
Samstarf og virkni í teymum
-
Markmið: Að auka vitund um streitu og álag og efla sjálfsstjórn og vellíðan.
Meðal efnis:
Að þekkja eigin streitueinkenni
Meðvitund um viðbrögð og vana
Letjandi og hvetjandi mynstur í daglegu lífi
Verkfæri til aukinnar sjálfsþekkingar
-
Markmið: Að styrkja einstaklinga í að virkja eigin kraft og skýra stefnu.
Meðal efnis:
Að finna og nýta styrkleika og gildi
Markmiðasetning sem skiptir máli
Jákvæð viðhorf og vellíðan
Forgangsröðun og meðvituð ákvörðunartaka
-
Markmið: Að efla traust, samvinnu og skýra ábyrgð innan teymis.
Meðal efnis:
Opin og heiðarleg samskipti
Hlutverk, ábyrgð og verkaskipting
Skýr mörk og virðing
Samskiptamenning teymisins
Mögnum mínúturnar
-
Markmið: Að bæta tímastjórnun, auka yfirsýn og draga úr álagi.
Meðal efnis:
Orkunýting og venjur
Tímaþjófar og truflanir
Forgangsröðun verkefna
Skýr markmið og væntingar
Meiri stjórn og betri líðan í dagsins önn
Ræðum næstu skref
Hvað er gagnlegt að skoða, rýna og skerpa á fyrir þinn vinnustað?