Spennandi störf hjá Umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar leitar að öflugum liðsmönnum í spennandi stöður á sviðinu.

FORSTÖÐUMAÐUR NÝFRAMKVÆMDA OG VIÐHALDS

Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga á umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar.

VERKEFNASTJÓRI

Nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja

VERKEFNASTJÓRI

Nýframkvæmdir og viðhald gatna og stíga

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða drífandi einstakling í fjölbreytt starf, með áherslu á eftirlit með framkvæmdum, verkstjórn, gerð mæliblaða og viðhalds teiknigrunna, auk annarra verkefna.

Sigríður Ólafsdóttir